Helgin byrjaði eins og aðrar helgar. Tiltölulega rólegt hafði verið á helgarvaktinni hjá rannsóknarlögreglu ríkisins, RLR, það sem af var. Þar sem lögum hefur verið mikið breytt þarf í stuttu máli að gera grein fyrir nokkrum atriðum sem giltu þegar RLR var til en rannsóknarlögregla ríkisins var lögð niður 1. júlí 1997.
Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást— æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.