Böcker
Ýmsir Höfundar

Félagsleg ábyrgð eða fórn á lífi

Þann 5. júní 2002 kom Eje Nilsson inn í verslunina Rimi á Sandavägen í Upp— lands Västby. Hann ætlaði að kaupa mat. Hverfið er kallað „Gleðin" en fyrir Eje var nafnið vægast sagt öfugsnúið.
Eje var nýlega orðinn fimmtugur og var að kaupa ýmsar vörur í kvöldmatinn sem hann ætlaði að gleðja sambýliskonu sína með. Hann vonaðist til að sonur hans og kærastan hans kæmu í heimsókn. Eje var herramaður og leyfði stressuðum viðskiptavini að fara fram fyrir sig í röðinni við kassann. Nokkrum mínútum seinna gekk hann rólega að bílnum sínum á bílastæðinu. Skyndilega var hann kominn í hættulegar aðstæður og varð að ákveða á sekúndubroti hvað hann ætti að gera. Póstræningi hljóp í veg fyrir hann og réðist á varnarlausa miðaldra konu og vildi þvinga hana til að afhenda honum bílinn sinn.
Án þess að hika reyndi Eje að bjarga konunni ásamt tveimur öðrum konum sem voru farþegar í bílnum. Þessi félagslega samábyrgð kostaði hann lífið…

Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást— æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
14 trycksidor
Ursprunglig publicering
2020
Utgivningsår
2020
Har du redan läst den? Vad tycker du om den?
👍👎
fb2epub
Dra och släpp dina filer (upp till fem åt gången)